mánudagur, 12. janúar 2009

myndir




árshátíðin í 10bekk..:)



hver er eigilega þetta hotbabe?!? oh grunnskóla árin voru yndislegur tími. vil taka það fram að svona var eg yfirleitt ekki klædd heldur er þetta á 80 balli í 8 bekk:)






























föstudagur, 9. janúar 2009

huh?


andvaka, hnútur í mallanum sem blandast við drullupestina og örann hjartsláttinn.. hvað í andskotanum er ég að hugsa? ég má ekki vera að því að standa í svona fkn veseni. afhverju get ég ekki fkn gleymt honum labbað í burtu eins og ég geri alltaf. það er ekki eins og hann sé eitthvað sérstakur. hann er bara einn af þeim.. ein talan í viðbót sem ég náði að hrekja í burtu. andskotinn. afhverju kem ég honum ekki út úr hausnum minum!!!!


hvað er að gerast með mig. græt og veit ekki einu sinni afhverju. ég hef ekkert til að gráta yfir svo afhverju er ég svona tilfinninganæm. horfi á sjálfa mig í spegli og þekki ekki spegilmyndina. hver er ég eigilega??

miðvikudagur, 7. janúar 2009

já lífið er yndislegt. þótt veðrið sé nú ekki spes. nú er um það bil vika búin af janúarmánuði og krakkarnir flikkjast í skólann. tréin eru enn nakin og skýin gráta yfir okkur. nú fer jólaskrautið að hverfa og brátt fer aftur að birta til á litla landinu okkar. leitt að maður skuli ekki hafa einhvern til að eyða skammdeiginu með. þótt það sé ekki eitthvað sem maður vill vera a fara útí því karlmenn eru eintómt vesen. en kannski maður þroskist bráðum uppúr þeim kenningum og næli sér í einn hot babe til að hafa svona hjá sér. já ég held að flestir hefðu gott að því að hafa einhvern í dimmunn, einhvern til a kúra hjá, einhvern til að treysta á. hvað finnst ykkur?? ætti maður að fara að leita??


smá video frá því seinasta sumar..

laugardagur, 3. janúar 2009

smá svona


2009 byjar vel.. ógleði og lítil matarlyst einkenna fyrstudaga ársins. en skemmtilegt að byrja árið með einhverja pesti.. skólinn fer senn að byrja sem þýðir að brátt fara Erna og Elva að fljúga heim.. jólafríið hefur svo sannarlega verið gott þó lítið hefur verið um ævintýri og drykkjuskap.. desember var mest bara stress og kvíði fyrir jólunum og svo auðvitað vinnan. lítið var um rifrildi þó það kom samt aðeins uppá, en það var nú ekkert of alvarlegt, hefði verið hægt að komast framhjá því með smá þolinmæði og minni ölvun einstaklinga. ég vona þó að árið 2009 skáni eitthvað frá þessum fystu dögum ársins sem hefur verið eins og ég segji skíta pest og leiðindar rifrildi. sæl að sinni

föstudagur, 2. janúar 2009

gleðilegt ár 2009

já fyrsti dagur ársins 2009 var tjah þynkan í hámarki, ógleðin í miklu magni og nokkrir marblettir hér og þar.. karlmenn í lífi mínu zero, tjah fyrir utan fjölskyldumeðlimi. kynlíf, ekkert síðan 2008. áramótaheiti : ekkert... jæja nú þarf maður svo sannarlega að taka sig til í andlitinu, taka upp prjónana og fara að skapa eitthvað, gera eitthvað við líf sitt. þetta ár mun ég nota til að rækta sjálfa mig og tengsl við aðra, engir karlmenn munu komast inn fyrir mínar dyr.

hver þarf á karlmönnum að halda?? tjah ekki ég, ég hef allveg séð það fyrir að þeir eru aðeins vandræði, vonbrigði og volæði.. ég held nú bara að ég vilji frekar sjá um mig sjálf heldur en að verða alltaf fyrir vonbrigðum, því það er það eina sem þeir gera, tjah þegar þeir eru ekki til vandræða, gera eitthvað af sér og þú þarft svo að hlusta á volæðið í þeim. já karlmenn þroskast líklega aldrei og ef þeir gera það þá þroskast þeir seint, þótt þú reynir að leita ofar þá virkar það ekki nema þú farir uppí svona fertuga-fimmtuga náunga, hef því miður ekki reynslu af þeim. já mig hefur oft langað að verða ástfangin og allveg nokkrum sinnum talið mig hafa fundið þann rétta en hvað.. neibb aldrei gerst. kannski er þetta bara ég.. nei ég efa það..