þriðjudagur, 30. september 2008

Vinur



vinátta, eitt það dýrmætasta sem maður á. þú getur alltaf treyst á vini þína og ef þeir eru sannir vinir fara þeir aldrei frá þér. einhver sagði eitt sinn að vinir væru eins og stjörnurnar, þú sérð þær ekki alltaf en veist þó að þær eru þarna. að eiga sanna vini er það mikilvægasta, þið getið rifist en sæst aftur, þið getið slegist og vitað að þið fyrirgefið hvort örðru, og þegar eitthvað kemur uppá veistu að vinur þinn er alltaf til staðar fyrir þig sama hvað. alvöru vinur myndi ekki skilja þig eftir hauga fulla niðrí bæ, hann/hún myndi ekki gefa skít í þig ef þú værir veikur eða eitthvað hræðilegt hefði gerst, sannur vinur klórar út seinustu krónurnar bara til að fara með þér í bíó eða út að borða, bara til að vera með þér. sannir vinir hlæja saman og gráta saman, þeir hlusta á vandamálin þín því þeir vita að þu dæmir þá ekki. ekki gleyma að þú átt sannan vin sem hugsar til þín
mér var gefin fjölskyndan en guð sé lof þá fékk ég að velja vini mina sjálf!

föstudagur, 26. september 2008

Kristín :*



Engill sem vakir yfir manni, sú sem kvaddi þennan heim fyrir tveimur árum aðeins 16 ára að aldri. Engill sem kom manni til að hlæja, var svo örugg og brosti alltaf í gegnum lífið, sú sem kenndi manni að lífið er stutt og maður verður að njóta þess. Hún býr í hjarta okkar og við hugsum stöðugt til hennar.


Það er svo langt síðan seinast, og við söknum þín of mikið. Þitt fallega bros og krúttlegi hlátur sem virðist vera öld síðan maður heyrði í en maður heyrir samt þegar maður hugsar um allar góðu minningarnar, og hvert skipti sem maður keyrir framhjá húsinu þínu ósjálfrátt lítur maður upp í gluggann þinn.


Engillinn minn ég sakna þín:*


Kristín Eiðsdóttir

f 30.08.90

d 27.09. 06

miðvikudagur, 24. september 2008

Ræktin


ræktin, staður þar sem allskonar fólk kemur saman til að svitna saman og keppast um hver brennir mestum kaloríum. Flest er þetta fólk sem jú þarf á þessu a halda en svo auðvitað eru líka inná milli fólk sem nýtur þess einskins að láta horfa á sig, svona stelpur með sílikon sem dressa sig upp í eins lítið að fötum og þær geta fara í 1-2 tæki og reyna að hafa allar hreyfingar mjöög sexy! pff hvað er það samt?! HALLÓ ég held að flest allir séu bara að horfa á þær því þær eru svo asnalegar:/
svo er það annað af því ég er svona ný í þessu öllu og svona, afhverju eru alltaf sömu gaurarnir í lyftingasalnum?! þeir eru hel köttaðir en eru sennnilega í þessum metingi öllum sem fer alltaf fram á þessum stöðum, og já annað, afhverju ef maður ætlar í sund þarf maður endilega að labba í sínum litlu fötum framhjá ÖLLUM sem eru inni að æfa já maður þarf að labba fram hjá riisa stórum gluggum og ÖLL tækin snúa í átt að þessum gluggum! Er þetta svo hitt fólkið sem er inni á hlaupa geti svona mælt það út já ég vil vera svona fitt þá verð ég gefa aðeins í eða er þetta allt ein stór perraskapur svo allir kallarnir geti horft á stelpurnar sem ákveða að fara í sund, eða kannski er þetta svo að sílikonbarbie geti sýnt sig betur?!? hmm.. gæti verið allt þetta, gæti verið ekkert, kannski er þetta bara allt tilviljun!
eruði farin að átta ykkur á því samt hvað ég er mikið að sýna það að ég sé byrjuð í ræktinni?!?
Elsa María

laugardagur, 20. september 2008

ísland best í heimi

Ísland, litil eyja í Atlandshafinu. Hér er ekki snjór allt árið og nei við búum ekki í snjóhúsum. Við notum ekki sleða sem dregnir eru um af sleðahundum og hér eru engir ísbirnir, tja en þeir eiga það til að kíkja í heimsókn, í guðana bænum ekki rugla landinu okkar við Grænland, pínu rulingslegt ég veit en Grænland eru með ísbirni og sleðahunda og fleiri hundruð kílómetra af snó.



Reykjavík, saklaust sjávarþorp. Þar sem þú getur heyrt fuglasöng á sumrin og fundið imlinn af blómunum, þar sem tréin skipta um lit á haustin og ástin blómstrar allan ársinshring. Hér snjóar, hér rignir og sólin skín allt á sama tíma. Á veturanar er dimmt á kvöldin og yfirleitt byrar að dimma um 4 og það birtir ekki til fyrr en daginn eftir um eða uppúr hádegi, hvílikur unaður, en á sumrin hinsvegar verður bara aldrei dimmt svo þú veist eigilega ekkert hvort það sé dagur eða nótt.

Já landið okkar er skrítið og býr yfir dularfullum ráðgátum sem varla er hægt að fá svar við. Hér ganga allir í skóla frá 6 ára aldri og eru yfirleitt í skóla í sirka 20 ár eða þar til maður er orðin 26 ára. Hér hefur fólk varla tíma til að eiga börn svo þjóðin okkar stækkar lítið. Fólkið hér lifir í 100 ár og þá deyr það yfirleitt úr elli.
--
Ísland er frækt land fyrir fegurð, góðmennsku og tja druslur. Ég hef ekki hugmynd hvaðan ferðamenn ,aðalega menn þá ekki konur, fá þær upplýsingar að íslenskar stelpur séu lauslátar og viltar, drykkfeldar og til í hvað sem er. Satt að segja þekki ég mjög fáar stelpur sem væru til í hvað sem er með skítugum, ruddalegum og dónalegum ferðamönnum
Ég nefndi líka að Ísland væri fallegt, landslagið, íslensku stelpurnar og kindin!!! ekki má gleyma íslensku kindinni. Hvert sem þú ferð fyrir utan Reykjavík er kindin okkar sem allir eru svo hrifnir af. Afhverju er kindin ekki á skjaldamerkinu?!?
Íslendirnar eru góðir og gjafmildir og þess vegna er landið okkar opið öllum. Ferðamönnum, flóttamönnum og glæpamönnum þó aðalega útlendum. Hér koma glæpamenn til að drepa mann og annan bara til að fá að sitja í íslenskum fangelsum, því ég meina það er bara eins og að lifa frítt. Sjónvarp, frí geðrænhjálp og þeir fá að læra, fá fríann mat, vinna eitthvað smotterí og svo chilla. Ísland er fullt af úlendingum, aðalega pólverjum, slatta af tælendingum og svo filipseyjingum. Hér eru örfáir danir og bretar og fleiri. Flest allt mjög gott fólk, góðir vinnu kraftar, halda landinu uppi svo við Íslendingarnir getum farið út í skóla. Auðvitað var þetta allt planað. Íslendingar eru gáfaðir halló!!!!

ég tel þetta gott í dag. þakka fyrir mig.

Elsa María

smá test hérna


ég er aðeins að testa þetta hérna :) mér finnst ég vera geggjað góð í þessu sko meðal við fyrta skiptið mitt ha!?!
en þetta er alla vegna mynd af mér og elínu vinkonu minni síðan í gær.. frekar óskýr mynd :)

wazz up?

hæ hehe þetta er svona þúsundastabloggsíðan min r som en látum reyna á þetta

jæja hmm.. helgin, já helgin verður róleg, ömm í gær bakaði ég köku og bauð Elínu, Svenna og Kristínu heim það var hevý kósý. bakaði frönskuskúkkulaðikökuna góðu.
í dag verður svo chillað horft kannski á einhverjar dramatíksar myndir, poppað og haft það virkilega notalegt.
á morgunn er það svo vinnan já fra 9-5 í húsdýra-og fjölskyldugarðinum. og svo veit maður aldrei hvað maður geri eftir vinnuna.. en það kemur allt í ljós