föstudagur, 26. september 2008

Kristín :*



Engill sem vakir yfir manni, sú sem kvaddi þennan heim fyrir tveimur árum aðeins 16 ára að aldri. Engill sem kom manni til að hlæja, var svo örugg og brosti alltaf í gegnum lífið, sú sem kenndi manni að lífið er stutt og maður verður að njóta þess. Hún býr í hjarta okkar og við hugsum stöðugt til hennar.


Það er svo langt síðan seinast, og við söknum þín of mikið. Þitt fallega bros og krúttlegi hlátur sem virðist vera öld síðan maður heyrði í en maður heyrir samt þegar maður hugsar um allar góðu minningarnar, og hvert skipti sem maður keyrir framhjá húsinu þínu ósjálfrátt lítur maður upp í gluggann þinn.


Engillinn minn ég sakna þín:*


Kristín Eiðsdóttir

f 30.08.90

d 27.09. 06

Engin ummæli: