
vinátta, eitt það dýrmætasta sem maður á. þú getur alltaf treyst á vini þína og ef þeir eru sannir vinir fara þeir aldrei frá þér. einhver sagði eitt sinn að vinir væru eins og stjörnurnar, þú sérð þær ekki alltaf en veist þó að þær eru þarna. að eiga sanna vini er það mikilvægasta, þið getið rifist en sæst aftur, þið getið slegist og vitað að þið fyrirgefið hvort örðru, og þegar eitthvað kemur uppá veistu að vinur þinn er alltaf til staðar fyrir þig sama hvað. alvöru vinur myndi ekki skilja þig eftir hauga fulla niðrí bæ, hann/hún myndi ekki gefa skít í þig
ef þú værir veikur eða eitthvað hræðilegt hefði gerst, sannur vinur klórar út seinustu krónurnar bara til að fara með þér í bíó eða út að borða, bara til að vera með þér. sannir vinir hlæja saman og gráta saman, þeir hlusta á vandamálin þín því þeir vita að þu dæmir þá ekki. ekki gleyma að þú átt sannan vin sem hugsar til þín

mér var gefin fjölskyndan en guð sé lof þá fékk ég að velja vini mina sjálf!
2 ummæli:
Elska þig músin mín.. sakna þín í ræmur!!;*;*
elska þig líka ástin min:* og sakna þín miljón mikið
Skrifa ummæli