fimmtudagur, 30. október 2008

18 ár


já hún Guðrún mín Helga er 18 ára í dag þessi svaka skvísa. Vildi bara óska henni ynnilega til hamingju með daginn:) love you girl:*

sunnudagur, 26. október 2008

smá til að lífga uppá daginn









langaði að deila nokkrm gömlum myndum með ykkur


hér er ég og erna mín:*










ég að pósast











guðrún,ég og elva










ég og erna elskan








ég og dudda systir min





haha langlegar!!!
var þetta nú ekki yndælt!?!

laugardagur, 25. október 2008

hmm..



hvenær getur maður vitað hver maður er í raun og veru? er ég bara Elsa sem veit ekki hvað hún vill og hvert hún stefnir, verð ég alltaf sú Elsa eða mun ég að lokum finna sjálfa mig og hvað ég vil gera við líf mitt. mun ég finna þann sem ég leita að eða mun ég bara vera ráðvilt? mun draumaprinsinn minn koma ríðandi á hvítum hesti eða þarf ég að hafa fyrir því að finna hann?


afhverju virðist líf allra aðra vera svoo einfalt meðan mitt er flókið og hreint út sagt boring. afhverju virðast allir vita hvað þeir vilja nema ég.


hvernig veit maður að vinir sínir séu vininr í raun? er það þeir sem hafa samband við þig? þeir sem bjóða þér í party? ætli maður fái einhver tímann að vita það fyrir víst, fólk labbar inn og út úr lífi manns stöðugt sumir skilja eftir fótspor aðrir ekki? skilur þú eftir fótspor? hefuru hugsað þér hvað það getur sært að labbað út úr lífi manneskju án ástæðu??

miðvikudagur, 22. október 2008

hjarta, spaði, tígull, lauf!

snjór, snjór..... dettá mig. vindur, vindur burt með þig. allt er í snjói á íslandiiii. snjór, snjór dettá mig...:) þetta land maður, einn daginn er rigning og næsta dag bara allt á kafi í snjó. þarf að skafa bílinn og fara í bommsur og allir eru í feluleik, eða kannski ekki.



þegar ég segji hjarta hvað dettur ykkur í hug?!? okee mér dettur í hug ógeðslegt líffæri sem heldur manni gangandi og er alltaf að pumpa. skil ekki hvar fólk fékk þá hugmynd að hjarta væri roslega fallegt og merkti ást. hmm kannski aþþí það pumpar hraðar þegar u sér einhvern sætann en ég held að hjartað geri það bara svo u fair ekki hjartaáfall og drepist. þess vegna segjir fólk kannski ég er að deyja úr ást, nee held að fólk segji það ekki mikið nú til dags því í rauninni elskar enginn þannig séð skiluru það eru allir að ríða öllum og allar stelpur eru druslur og allir gaurar geggjað töff og ég bra er ekki allveg að finna mig sko. (lesið kommentið hennar ernu á blogginu fyrir neðan hevý töff) kannski er bara einfaldast að vera sjálfkynhneigð. bara elska sjalfa sig og svona. ég meina það þýðir ekki að ég meigi ekki sofa hjá strákum ég meina ppl do that all the time. ég er gagnkynhneigð en mér finnst samt gaman í 3som með stelpum.. uu WTF! og svo fer fólk a kalla sig by, afhverju ertu ekki bara annað hvort hommi eða lessa!?!? ha?!? mér finnst skrítið að getað verið bæði fyrir stelpur og stráka á sama tímanum. ég meina ég er deffenetlí hommi. GAY LOVE.




hvað finndist ykkur um ef ég fengi mér permanett?!? svolítið crazy ha?

mánudagur, 20. október 2008

smá pirringur





vonsvikin og eintóm vonbrigði, já við getum ekki lifað með þeim og við getum ekki lifan án þeirra, getið um hvað ég ræði hér. Karlmenn já rétt. það ætti að fylgja leiðbeiningar með þeim. vertu hér, farðu þangað, koddu aftur, ekki fara, vertu kyrr. hey fokk jú ég ætla ekki að gera það sem þér henntar í hvert skipti sem þér henntar skipti vinurinn, nei ég er ekki brúða sem þú getur gripið í þegar þér henntar og þú þarfnast mín. take it or leave it. skil ekki hvar strákar fá þá ýmind að ég nenni eitthvað að bíða eftir þeim. kannski voru þeir með þannig géllum en hey ég er ákveðin manneskja og ég nenni ekki að eyða mínu lífi að bíða eftir einhverjum hálfvita sem getur ekki gefi sér tíma í að virða mig og mínar tilfinningar. ef þetta á allt að snúast í kringum rassgatið á þer þá getur allt eins sleppt þessu því veistu ég held að u myndir ekki vera að eyða tíma að bíða eftir mér ef ég myndi láta eins á hálfviti.



sumir myndu segja að ég væri frek en hey, stundum þarf bara að segja það sem er ósagt. jú kannski ligg ég flöt fyrir þér og hjartað hamast og ég gæti gert hvað sem er fyrir þig en hey þú verður að geefa eitthvað til baka. aðeins fimm ára var mér sagt að ég mætti ekki vera svona frek en ég hef yfirleitt verið þekkt fyrir að svara fyrir mig svo ég sagði "ég er bara að þróa kvennlegt innsæi" ég er ekkert frek ég er bara ákveðin ung stelpa og ef þið getið ekki þolað það þá getiði labbað í burtu núna.
skylgreindu orðið : drusla

fimmtudagur, 16. október 2008

<3



mamma er konan, pabbi er maðurinn. þetta byrjar allt þannig. smá ást og örlítill blossi, og þú verður til. mamma er sú sem gengur með þig í 9 mánuði, pabbi er sá sem bíður spenntur og "talar" við þig þessa 9 mánuði. mamma kemur þér í heiminn með erfiðum, svita og tárum, pabbi er þarna til staðar og heldur í hendina hennar. þau eru svo glöð að fá þig í hendurnar. mamma fæðir þig og klæðir, pabbi gefur þér skemmtilegt dót. mamma kyssir á báttið ef þú meiðir þig, pabbi kennir þér að bíta á jaxlinn. mamma les fyrir þig sögurnar fyrir svefninn, pabbi kemur , breiðir yfir þig og kyssir þig góða nótt.
þú stelur snyrtidótinu hennar mömmu og skreytir þig alla með fínu skartgripunum hennar, þau brosa því þú ert litla prinsessan þeirra. fyrsti skóladagurinn þinn, mamma með tárin í augunum og þau sjá litla barnið sitt stækka svo fljótt, áður en þau vita af fá þau engu að ráða. þau lesa ekki legur fyrir þig og pabbi breiðir ekki lengur yfir þig áður en þú sofnar. mamma þarf ekki að kyssa á báttið því nú ertu nógu stór til að hrista sársaukan af þér. þú vex í burtu frá foreldrum þínum þótt þau séu það sem þú elskar mest. og hvað se skéður þá elska mamma og pabbi þig alltaf mest þvi þú ert ennþá litla prinsessan þeirra sama hversu hratt þú stækkar eða hversu mikið þér liggur á að verða fullorðin.

þriðjudagur, 14. október 2008

15. okt.



það er fallegur dagur í dag , bjart en fremur kalt. kannski hægt að kalla þetta gluggaveður kannski ekki. kannski þurfa krakkarnir að vera í útgölllum kannski ekki.kannski þarf að skafa gluggana á bílnum, kannski ekki. tjah ég hef ekki svör við öllu og sérstaklega ekki um veðrið þar sem ég ligg enn undir heitri sænginni og nenni ekki að hreyfa mig. kl er 10:40, en eg get ekki heyrt fugla sönginn. hvar eru fuglarnir?! eru þeir farnir?!? er það afþví að það er kalt á íslandi?! líklega!

en þó að það sé kalt á landinu og við heyrum engann fugla söng þá ríkir ástin í hjörtum okkar og sá ástarblossi deyr vonandi ekki. að elska er dásamlegt, ég elska fjölskyldina mína, ég elska vini mina og ég elska jafn vel þig! döfull vorkenni ég þeim sem geta ekki eða vilja ekki elska. því það er svo yndislegt og skemmtilegt jafnvel ef það er bara fjölskyldan þín þ.e.a.s ef u átt enga vini. reyndu a finna ástina í hjarta þínu.


Elsku Bjössi minn til hamingju með afmælið, 25 ár vá!! þegar ég kynntist þér þá varstu 7 ára og ég hmm.. var að fæðast. þú varst mér sem bróðir, líklega afþví þú ert bróðir minn. ég stríddi þér og þú stríddir mér og þannig var heimurinn yndæll, ekki fullkominn en þannig er víst að eiga eldri bræður, ég bíst við að bjarni hafi líka verið þannig við þig og þú við hann. eins og þegar þú skeindir þér uppá bak þegar þú varst 3 ára og lést svo Bjarna Þór þrífa það, haha. eða þegar Bjarni Þór lét mig sleikja á sér tærnar aþþí að þa átti að vera jarðaberjabragð af þeim, ojj. Skál fyrir þér og næstu 75- 100 árum sem þú átt eftir.
kveðja Elsa María

fimmtudagur, 2. október 2008

veturinn


snjórinn er kominn sem þýðir aðeins eitt, það er kominn veturinn. þessi ekta íslenski vetur. já breiðholtið er hvítt núna svo ég held að húfan og vettlingarnir verða manns bestu vinir næstu mánuðina.
á veturnar er ískalt hérna á litla landinu okkar en það lætur nú enginn það á sig fá. krakkarnir klæðast kuldagöllum og jafnvel foreldrarnir líka. flestum finnst gaman að leika sér í snjónum þegar hann lætur sjá sig og fólk gerir furðulegustu hluti, rennir sér á tveimur prikum sem kallast skíði og sumir eru of töff fyrir það og þá eru þeir bara á svona einu priki sem heitir sjóbretti og það er sko miklu töffaðara sérstaklega afþví maður dettur oftar á því. krakkar bara að snoða bolta úr snjónum og stundum er meira að gera risa kúlur og setja steina á það og gulrót og hatt og skíra það svo snjókall. útum allt eru þessar snjókellingar og kallar og allir eru voðalega ánægðir með sína fígúru þótt þær séu yfirleitt forljótar.
veturinn er líka tími umferðaslysa því yfirleitt er fólk svo kærulaust að það nennir ekki að bíða í röðum eftir nýjum og betri dekkjum svo auðvitað er miklu sniðugra að taka bara áhættuna! á veturnar eru yfirleitt allir spítalar fullir því það eru allir að slasa sig, á snjóbrettum, í bílunum, og á því að sleikja ljósastaura, veit ekki allveg hver kom með það en það er alls ekki sniðugt, tala af reynslu.
en auðvitað er ekkert allt slæmt við veturnar. þá eru jólin og mamma er heima með heitt kakó og allir fara í leiki útá plani. það er geggjað. eintóm hamingja sem ríkir alltaf á þessu landi!
Elsa María