fimmtudagur, 16. október 2008

<3



mamma er konan, pabbi er maðurinn. þetta byrjar allt þannig. smá ást og örlítill blossi, og þú verður til. mamma er sú sem gengur með þig í 9 mánuði, pabbi er sá sem bíður spenntur og "talar" við þig þessa 9 mánuði. mamma kemur þér í heiminn með erfiðum, svita og tárum, pabbi er þarna til staðar og heldur í hendina hennar. þau eru svo glöð að fá þig í hendurnar. mamma fæðir þig og klæðir, pabbi gefur þér skemmtilegt dót. mamma kyssir á báttið ef þú meiðir þig, pabbi kennir þér að bíta á jaxlinn. mamma les fyrir þig sögurnar fyrir svefninn, pabbi kemur , breiðir yfir þig og kyssir þig góða nótt.
þú stelur snyrtidótinu hennar mömmu og skreytir þig alla með fínu skartgripunum hennar, þau brosa því þú ert litla prinsessan þeirra. fyrsti skóladagurinn þinn, mamma með tárin í augunum og þau sjá litla barnið sitt stækka svo fljótt, áður en þau vita af fá þau engu að ráða. þau lesa ekki legur fyrir þig og pabbi breiðir ekki lengur yfir þig áður en þú sofnar. mamma þarf ekki að kyssa á báttið því nú ertu nógu stór til að hrista sársaukan af þér. þú vex í burtu frá foreldrum þínum þótt þau séu það sem þú elskar mest. og hvað se skéður þá elska mamma og pabbi þig alltaf mest þvi þú ert ennþá litla prinsessan þeirra sama hversu hratt þú stækkar eða hversu mikið þér liggur á að verða fullorðin.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha dúllur;*