miðvikudagur, 24. september 2008

Ræktin


ræktin, staður þar sem allskonar fólk kemur saman til að svitna saman og keppast um hver brennir mestum kaloríum. Flest er þetta fólk sem jú þarf á þessu a halda en svo auðvitað eru líka inná milli fólk sem nýtur þess einskins að láta horfa á sig, svona stelpur með sílikon sem dressa sig upp í eins lítið að fötum og þær geta fara í 1-2 tæki og reyna að hafa allar hreyfingar mjöög sexy! pff hvað er það samt?! HALLÓ ég held að flest allir séu bara að horfa á þær því þær eru svo asnalegar:/
svo er það annað af því ég er svona ný í þessu öllu og svona, afhverju eru alltaf sömu gaurarnir í lyftingasalnum?! þeir eru hel köttaðir en eru sennnilega í þessum metingi öllum sem fer alltaf fram á þessum stöðum, og já annað, afhverju ef maður ætlar í sund þarf maður endilega að labba í sínum litlu fötum framhjá ÖLLUM sem eru inni að æfa já maður þarf að labba fram hjá riisa stórum gluggum og ÖLL tækin snúa í átt að þessum gluggum! Er þetta svo hitt fólkið sem er inni á hlaupa geti svona mælt það út já ég vil vera svona fitt þá verð ég gefa aðeins í eða er þetta allt ein stór perraskapur svo allir kallarnir geti horft á stelpurnar sem ákveða að fara í sund, eða kannski er þetta svo að sílikonbarbie geti sýnt sig betur?!? hmm.. gæti verið allt þetta, gæti verið ekkert, kannski er þetta bara allt tilviljun!
eruði farin að átta ykkur á því samt hvað ég er mikið að sýna það að ég sé byrjuð í ræktinni?!?
Elsa María

3 ummæli:

Unknown sagði...

Fólk er bra þroskaheft!!! Strákur sem ég þekki fer alltaf í sturtu FYRIR ræktina og eftir vegna þess að hann vill vera hot stuff í ræktinni!!! Hvar ertu annars í ræktinni?

Nafnlaus sagði...

haha já að er allveg magnað hvað fólk er mikið að spá í þessu.. ég er í world class og þar er fólk bara úber mikið að velta þessu fyrir sér, svo er maður þarna að púla og er sveittur eins og ég veit ekki hvað og ótrúlega ósexy á meðann hinar stelpurnar hugsa mest um að vera geggjað sexy og passa sig að svitna sem minnst.. mjööög asnalegt

Nafnlaus sagði...

Alveg ótrúlegt.. hvert er þessi heimur að fara?!? Útlitsdýrkunin.. jájá eigum við að ræða hana eitthvað.