þriðjudagur, 4. nóvember 2008

löööv



trúir þú á ást við fyrstu sýn?




það eru mismunandi skoðanir á þessu, sumir segja þú getur ekki séð/hitt manneskju og strax orðið ástfangin, aðrir segja tjah afhverju ekki? þegar þú ert oft búin/búinn að hitta á ranga fólkið tekur baður þá ekki eftir því þegar loksins rétta fólkið labbar inn í líf þitt?




ætli ástin sé ekki eitt það flóknasta sem lífið bíður uppá, og einhvern vegninn virðist vera að þegar fíflin ganga inn, heilla þig uppúr skónum og labba svo í burtu, það særir mest. afhverju sér maður mest eftir þeim sem voru hvað verstir við þig? afhverju getur maður ekki bara labbað í burtu sjálfur?



hefuru orðið ástfangin/ástfanginn?



...fundið hvernig hjartað slær hraðar og hraðar og fastar og fastar þegar ákveðin manneskja kemur á msn, sendir þér sms eða blikkar þig? hvernig hrollurinn færist eftir líkamanum þegar hann/hún strýkur niður vangann þinn, þegar hann horfir beint í augun þín eða þegar hann/hún horfir svo sterkt á þig og þú getur ekki hætt að brosa, roðna eða hlæja...

hvernig getur ein manneskja látið allt verða svo yndislegt, dásamlegt, fullkomið. ekkert nema fiðrildi og spennur.
svo trúir þú á ást við fystu sýn??

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ást við fyrstu sín.. áhugavert!!! :D
haha.. þú og harðfiskurinn þá eða?? :'D
Sá allavegana að þið harðfiskurinn hafið það voða comfý uppí rúmi ;)

en já ást við fyrstu sín er til..
Allavegana sá ég í fyrra einstakling sem að heillaði mig uppúr skónum.. og ég fer ennþá í kerfi þegar ég sé þennan sama einstakling.. en er það ást? tjah! neiiii.. held ekki.. meira bara svona hrifning/heillun við fyrstu sýn.. hahah :) allavegana góð pæling :D

Nafnlaus sagði...

þetta er sona smá hugdetta, en já harðfiskurinn, tjah veit ekki hvort hann hafi átt upptök af þessu bloggi..